Eysteinn Pétursson / Það er margt í mannheimi

 

Stream and buy this album at gogoyoko

Á plötunni „Það er margt í mannheimi“ eru 12 lög í flutningi Eysteins Péturssonar. Lögin koma úr ýmsum áttum og hafa fylgt Eysteini lengi, mörg frá námsárunum í Kaupmannahöfn. Eysteinn semur sum lögin en aðrir lagahöfunar eru m.a. Þórbergur Þórðarsson og Tom Lehrer. Ljóð á plötunni eiga meðal annars Örn Arnarsson, Sigfús Blöndal og Jón Helgason.

„Það er margt í mannheimi“ er margslungin í einfaldleika sínum þar sem stutt er á milli hláturs og gráts. Flutningur Eysteins skiptist í dramatíska og glaðværa túlkun eftir því sem lög og ljóð gefa tilefni til. Eysteinn er heiðarlegur gagnvart lögum og ljóðum og nálgast þau af innlifun og einlægni.

Eftir að Eysteinn sneri heim frá Kaupmannahöfn hóf hann störf á Landspítalanum. Gítarinn var þó aldrei langt undan og tróð hann stundum upp á mannamótum. Upptökur hófust árið 2005 og voru gerðar í skorpum þangað til verkinu lauk haustið 2011. Upptökur fóru fram í Breiðholti, á Seyðisfirði, í Havarí og víðar. Tónleikum fjölgaði nokkuð meðan á upptökum stóð og hitaði Eysteinn meðal annars upp fyrir Skakkamanage, Alasdair Roberts og Seabear.

Svavar Pétur Eysteinson sá um hljóðritun, hannaði umbúðir, og gefur plötuna út.

(english)

"Það er margt í mannheimi" (e: There are many things in our world) is the debut album of Eysteinn Pétursson, a retired physicist from Iceland. It contains 12 songs by him and others, some by Tom Lehrer and others by Þórbergur Þórðarsson (Icelandic novelist), one french folk song can also be found there. "Það er margt í mannheimi" is a layered album carried out by Eysteins charistmatic singing and subtle guitar playing. The lyrics are satirical, threading a line between life and death, fun and drama, the known and the unknown.

Það er margt í mannheimi is recorded in batches by his son Svavar Pétur (Skakkamanage & Prinspóló) from 2005 till 2011 all around Iceland. He also mixed, designed artwork and releases this album.

 

Flytjandi: Eysteinn Pétursson
Titill: Það er margt í mannheimi
Cat nr: SKA006
Útgefandi: Skakkapopp
Dreifing: Kimi Records

1. Það sem enginn veit
2. Í bíl
3. Ókindarkvæði
4. Má ég fá harðfisk?
5. Amma kvað
6. Önundur Póli
7. Ég held um hönd þér væna
8. Alvilda
9. Írska ballaðan
10. Lestin brunar
11. Au clair de la lune
12. Í Möðrudal á Fjöllum

-------------------------------------

back to