Duttlungar

Þrándar Þórarinssonar

14.ágúst til 5. september 2010

Laugavegi 26 (áður Skífan)

Opin daglega frá kl 12- 18

 

Duttlungar er fjórða einkasýning Þrándar Þórarinssonar. Hún samanstendur af olíumálverkum sem flest eru óður til Reykjavíkur og sýna borgina eins og Þrándur vill hafa hana. Í verkunum varpar Þrándur meðal annars ljósi á Ingólfsstræti, Lækjargötu, Hljómskálagarðinn, Hverfisgötu og Pósthússtræti, auk þess sem hann hefur málað útifund á Austurvelli og garðinn við listasafn Einars Jónssonar.

Sýning ber merki capriccio stefnunnar sem iðkuð var á Ítalíu á 18. öld og snerist um að skálda inn í borgarlandslag arkitektúrískum fantasíum. Einnig er á sýningunni portret sería sem Þrándur gerði sem forvinnu að útifundinum á Austurvelli og síðast en ekki síst hefur Þrándur málað sjálfan sig í gervi amtmanns!

Sýningin er opin daglega frá 12-18 og stendur til 5. september.


……………………………………………………………………………………………………………

Hér eru ljósmyndir frá þriðju einkasýningu Þrándar í 101 gallerí Hverfisgötu í desember 2009

Hér eru ljósmyndir frá annarri einkasýningu Þrándar á Laugavegi 51 í apríl 2009

 

Hér eru ljósmyndir frá fyrstu einkasýningu Þrándar í Ó. Johnsson & Kaaber við Sætún í febrúar 2008

 

Smellið hér til að skoða viðtal við Þránd í Kastljósi í febrúar 2008 (movie 16 mb)

Hafið samband við info@skakkapopp.is til að fá frekari upplýsingar