Þrándur Þórarinsson listmálari opnar sína þriðju einkasýningu laugardaginn 5. desember. Að þessu sinni sýnir Þrándur á Hverfisgötu 18a þar sem áður var 101 gallerí. Opnunin er klukkan 16.00
Þrándur tók bílpróf á síðasta ári og ætlaði að láta gamlan draum rætast, ferðast um landið og mála einhverja merkisstaði. En draumurinn endaði þar sem hann hófst, á vinnustofu listamannsins í miðbæ Reykjavíkur, þar sem hann málaði 11 olíumálverk upp úr Áföngum, ferðakvæði Jóns Helgasonar frá 1939.
Á sýningunni eru líka stærri olíumálverk þar sem viðfangsefni Þrándar eru meðal annars Tyrkaránið, Manntalið 1703, og Geysir í Haukadal, þar sem Þrándur reynir með litum að fegra íslenskan veruleika.
Sýningin stendur fram á Þorláksmessu
Þrándur er fæddur 1978 og nam málaralistina hjá Odd Nerdrum eftir að hafa sótt fornámsdeild Listaháskóla Íslands og sitthvort árið í málaradeild Myndlistaskólans á Akureyri og málaradeild Listaháskóla Íslands.Þrándur sækir meðal annars viðfangsefni í íslenska sögu, þjóðsögurnar og Íslendingasögurnar undir áhrifum þjóðernisrómantíkur, barokks og endurreisnar. |